Færsluflokkur: Íþróttir
Íþróttir | 10.5.2006 | 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Íþróttir | 9.5.2006 | 20:23 (breytt kl. 20:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Jæja núna er ég kominn með internetaðgang aftur þannig að ég get bloggað núna dag frá degi. Eg hef haldið dagbók síðustu 2 daga og skrifa hana á eftir þessum texta. Í dag gekk ég frá 14 km upp eftir vegi 94 og endaði 1 km frá Svartaskógi. Veðrið er eiginlega of gott því að hitinn er í 20 gráðum þegar mest er og það sem ég er vanur að ganga í síðustu mánuði er nær 5 stigum. Þess vegna er vandamál á þessari göngu vökvaskortur og saltskortur. Var kominn með flökurleika og sinadrátt eftir fyrstu 15. Eftir Leppin orkudrykk og brauð var ég orðin miklu betri og hélt ég áfram 10 min seinna. Kominn með blöðru á vinstri fót. Ég undirbjó hana með því að setja yfir hana second skin plástur. Mikið af gæs og hunangsflugum. Nátúran er að taka við sér. Á morgun enda ég undir Hellisheiði eystri sem er hæsta heiði sem eg fer yfir á næstunni. Reyni að sofa vel til þess að vera vel up lagður fyrir heiðina.
7 mai 2150 km eftir
Í upphafi dags var gott veður og sól en kólnaði um miðjan daginn en varð síðan betra siðdegis. Strandgangan kom mikið í fjölmiðlum Ég fattaði að það vantaði 14 km uppá leiðina miðað við það sem ég hafði áætlað. Ég endaði við lagarfljótsvirkjun og labbaði 25.5 km
6. mai 2175 km eftir
Ég fór 25 km í dag. Þetta var mjög góður dagur. Veðrið var gola og 17 gráðu hiti. Eirikur bæjarstjóri Egilstaða og stjórnir krabbameinsfélaganna á Egilstöðum og Austfjörðum gengu með mér fyrstu km. Hunangsflugurnar eru byrjaðar að leita ser að bústað og eru áberandi. Fólk heilsar mér á göngunni og labbar mér. Steinn Steinsson sem ég hef ekki séð í 20 ár birtist allt í einu og labbaði með mér.
Íþróttir | 8.5.2006 | 19:38 (breytt 9.5.2006 kl. 20:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Núna byrjar gangan í fyrramálið á Essostöðinni á Egilstöðum kl 0900. Fúsi kominn til Akureyrar og leggur afstað til Egilstaða í eftirmiðdaginn. Ég fer með flugi til Egilstaða í hvöld kl 0700. Fúsi laggði af stað með 240 flöskur af orkudrykk. Hann skilur eftir 140 á Akureyri og fer með 100 stykki til Egilstaða. Viðtöl við fjölmiðla gengu vel í gær og sá dagur var mjög erfiður í alla staði og miklir snúningar bæði á mér og fúsa Greyinu. En allt gekk upp á þann hátt sem við ætluðum og það var fyrir öllu. www.memo.is eiga miklar þakkir skilið fyrir að merkja fyrir okkur 2 bíla. Pólóinn sem eyðilaggðist og bílinn hans fúsa sem við urðum að fara á í ferðina.
Íþróttir | 5.5.2006 | 09:15 (breytt kl. 14:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég og Einar Magnús upplýsingarfulltrúi strandvegagöngunnar fórum til Reynis Péturs göngugarps í Sólheima og konu hans. Við spjölluðum um heima og geyma og áttum mjög skemmtilegt hvöld saman. Hann hafði mjög gaman að þessu og tókum við myndir af okkur saman
Fúsi aðstoðarmaður er kominn með bílinn sinn frá Akureyri og hann er í merkingu hjá www.memo.is í þessum skrifuðu orðum. Hann nær í hann kl 17 í dag og fúsi miun leggja af stað til Akureyrar í hvöld og fer síðan frá Akureyri til Egilstaða á morgun. Þar hittumst við annað hvöld hjá Böðvari
Mæti í kastljósi og sjónvarpsfréttum í hvöld.
Íþróttir | 4.5.2006 | 10:22 (breytt 5.5.2006 kl. 14:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég lentí í því eftir að hafa merkt WV Poloinn minn strandvegagöngunni og krabbameinsfélaginu að gírkassinn varð ónýtur. Hann kostar 400.000 kr . Þetta þýðir að ég get ekki notað hann í ferðina . Ég reddaði þessu veseni með því að ég sendi fúsa bílstjóra til Akureyrar með flugi til þess að ná í gamla bílinn hans og hann fer í merkingu á morgun. Fúsi fer svo á honum til Egilstaða á föstudag. Ég mæti í kastljós á RUV annað hvöld.
Íþróttir | 3.5.2006 | 13:13 (breytt 5.5.2006 kl. 14:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bíllinn góði bilaði um helgina þannig að Fúsi aðstoðarmaður og frú gátu ekki farið á honum til Akureyrar eins og þau ætluðu. Ég set bílinn í viðgerð á morgun. Ef ég get fengið hann í vikunni þá væri það frábært. Hins vegar ef ég get ekki fengið hann í vikunni þá munum við verða með bílinn hans fúsa þangað til að Einar Magnús kemur til akureyrar í lok mai. Svona getur komið fyrir.
Íþróttir | 1.5.2006 | 09:22 (breytt kl. 09:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Íþróttir | 28.4.2006 | 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Íþróttir | 26.4.2006 | 09:05 (breytt kl. 09:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég sendi bílinn í dekkjaskipti yfir á sumardekk í snjónum í morgun!! Nú er komið sumar og þar við situr. Ömmulabbið um helgina gekk mjög vel og kom líkaminn vel út úr því. 12 dagar í gönguna
Íþróttir | 24.4.2006 | 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
Síður
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar