Geislabókin um Strandvegagönguna er komin í verslanir

Strandvegagangan er komin út á geisladiski form sem ég kalla geislabók. Þetta er í fyrsta skipti sem bók er gefin út á þessu formi á Íslandi.

Nýtt útgáfufyrirtæki á markaðinn

Ég er búinn að stofna nýtt útgáfufyrirtæki sem sérhæfir sig í að gefa bækur út á geisladisk. Þeir sem eru með bækur, leikrit eða ljóð tilbúið en hafið ekki komist að hjá hinum útgáfufyrirtækjunum endilega hafið samband við mig. Ég stefni að því að taka eins marga eins og hægt er fyrir jól. Ég er með enga ritskoðun eða listarýni. Efni er alfarið á ábyrgð höfundar. síminn minn er 6961311

Strandvegagöngubókin tilbúin

Ég og fúsi bílstjóri kláruðum bókina um strandvegagönguna í gær. Þetta er bók sem gefin er út á geisladiski sem er mjög skemmtilegt form. Það er umhverfisvænt og fer lítið fyrir því. Hún verður seld í pennanum og kemur í verslanir vonandi fyrir helgi. Einnig er möguleyki sem ég er að vellta fyrir mér og það er að opna bókaútgáfu sem gefur út bækur á geisladiskum. Þeir sem hafa áhuga á að fá gefið út efni eftir sig endilega hafiði samband við mig annað hvort hér á síðunni eða bara að hringja í mig.

Skipulag ferðar

Ég skipulegg ferðina eftirfarandi

 

Sumarið 2007: London-Edinborg

Sumarið 2008: Edinborg-Liverpool

Sumarið 2009: Liverpool- London

Erfiðasti leggurinn mun vera sumarið 2008 þar sem ég geng yfir Skosku hálöndin og Wales. Þetta verður töluvert lengra og erfiðara en vestfirðir.


Ástæðan fyrir því að ég hyggst ganga strandvegi Bretlands

Þessi leið er skemmtileg gönguleið vegna þess að samgöngur Íslands við Bretland hafa farið um Hull í áratugi. Ennfremur er þetta skemmtileg ganga vegna þess að ég mun ganga í gegnum óteljandi strandbæi á leiðinni. Bæi sem fáir ferðamenn fara til og ég myndi ekki heimsækja nema í einhverju svona verkefni. Ennfremur er þarna möguleiki á að bera saman ólíka staði eins og England, Skotland og Wales. Þessir hlutar eru ekki eingöngu ólíkir landfræðilega heldur líka menningarlega.

Jæja núna er ég byrjaður aftur

Ég er byrjaður aftur eftir tæpar 7 vikur í fríi frá labbi og ræktinni. Það er ágætt eftir svona törn eins og í sumar að leyfa líkamanum að jafna sig. En núna er ég byrjaður og fullur af orku fyrir næsta verkefni sem er strandvegaganga í kringum Bretland. Fyrsti áfanginn verður næsta sumar þegar ég labba frá Piccadilly Circus í London og til Edinborgar í skotlandi. Stefni á að gera það 1. júní 2007. ég er kominn með bílstjóra og bíl. Ég myndi senda bílinn með skipi vikuna áður og fara síðan með lest og ná í hann daginn áður. Ég er líka kominn með ritara þannig að ég mun skrifa meira í næstu ferð heldur en þeirri síðustu á bloggið.  Bretland er skemmtilegt land með tilliti til hjóla,hlaupa og göngutúra því að það er rík hefð fyrir göngustígum allstaðar meðfram götum. Þannig minnkar það hættu á slysum.

Stefnan er sú að ég fari 1000 km á sumri þangað til að ég klára þetta

Það sem ég er að gera núna er að leita mér að styrktaraðilum fyrir gönguna. Í þessu tilfelli er betra að fá peningaupphæð fyrir kostnaði heldur en að hringja í gistingar eins og ég ferði í fyrra. Á móti fær styrktaraðilinn auglýsingu sem verður mikil.

 


Walk around the UK

Now I will change to english because of my new project. My new project is to walk from London around the coast of the uk. I plan to begin 1. jun next year 2007 and finish the walk the summer 2008. The walk will take totally 10 weeks.  I am now training in World Class Iceland for this walk as with the last walk.

Litið yfir farinn veg

Það sem ég lærði á göngu minni um strandvegi Íslands má skipta í nokkra þætti

-Ég lærði gríðarlega á líkamann og hvernig hann hegðar sér undir álagi. Ég ætla að setja inn grein um þetta efni á næstunni því að sú vitneskja er efni í sér grein

-Ég kynntist Íslandi mjög vel og þorpum og sveitum á landsbyggðinni og hugsunarhætti fólksins.

-Fyrst og fremst lærði ég hvernig á að taka verkefni að mér sem er mjög stórt í sniðum eins og þetta og klára það með öllu því sem því fylgir.

-Ég lærði á fjölmiðla sem eru alveg óútreiknanlegir og koma yfirleitt ekki þegar þeir eiga að koma en koma þegar þeir eiga ekki að koma..

Hvað geri ég næst

Fyrir utan að byrja að vinna aftur þá langar mér að klára leitina að Goðafoss. Hún er erfið vegna margra utanaðkomandi þátta sem ég ræð ekki yfir eins og menntun og þjálfun kafara á Íslandi til þess að taka svona verkefni að sér. Ef svo reynist að þetta er ekki fyrir hendi þá verð ég að bíða í nokkurn tíma (ár) þangað til að það er komið í lag á Íslandi

Hvað hægt er að gera í framtíðinni fyrir garpa

Nú er ég búinn að ganga lengsta hring sem hægt er að  ganga í kringum Ísland og bætti fyrrverandi Íslandsmet um 2029 km úr 1417 km sem Reynir Pétur Ingvarsson tók 1985 og í 3446 km sem ég tók 2006.  Það sem mig langar til þess að gera er að taka garpamet í sjósundi. Núverandi lengsta sund sem þreytt hefur verið er að synda frá Vestmannaeyjum til lands. Kristinn Magnússon félagi minn frá Sundfélagi Hafnarfjarðar gerði það fyrir nokkrum árum. Mig langar að bæta um betur og gera eitt af eftirfarandi:

-Synda í kringum Ísland alls 2300 km leið

-Synda Frá Reykjavík til Skotlands 1100-1300 km

Mér líst best á síðari kostinn bæði af því að hann er styttri og ekki eins háður sjávarfallastraumum.


Göngunni lokið

Jæja þá er ég búinn að labba strandvegahringinn 3446 km. Þetta er búið að vera skemmtilegur tími sem tók að fara gönguna. Við Fúsi höfum kynnst helling af fólki og kynnst landinu allt öðruvísi. Ég þakka öllum sem hafa stutt mig á meðan á göngunni stóð og óska þeim alls hins besta

Gangan á morgun - Tímasetningar

kl 1000 - Ég legg af stað frá Mosfellsbæ

Kl 1500 - Fólk getur labbað með mér síðasta spölinn að Ráðhúsi Reykjavikur frá höfuðstöðvum Glitnis við Kirkjusand.

kl 1615 Borgarstjórinn í Reykjavík tekur á móti mér í Ráðhúsi Reykjavíkur og lok göngunnar staðfest

kl 1900 Vínbarinn Kirkjustræti. Boðið upp á osta og brauð og spjall


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband